30.06.2011 21:09:49 / boggih
»
29.06.2011 20:48:37 / boggih
Ég gleymdi að segja frá því um daginn þegar við vorum á veitingahúsi með pabba að borða frikadellur. Pabbi kvartaði yfir þessum frikadellum þetta er alveg bragðlaust svo að mamma rétti honum pipar og Hjörvar hristi hann og hálfur dallur yfir bollurnar hans hahahaha....

hann fann allavega bragð eftir þetta

. Við fórum í dag til Osterholz-Scharmbeck í sund menningarlegt enginn sápa til að þvo sér með í sturtunum. Þetta á víst að vera svaka sundlaugagarður með pálmatrjám og miðjarðarhafsgróðri já vá 1 tré og smá gróður hehehe

að vísu er hægt að opna þakið á sundstaðnum sem er snilld og nuddið er geðveikt í einni lauginni. Já svo fórum við í apótek til að redda frúnni fyrsta bitið hennar eitthvað að plaga hana sýndum afgreiðslu stúlkunni bitið og hún sagði bara þú verður að fara til doksa og við vorum send til doktors Kram hann talaði ensku og þar var krukkað í þetta og settar umbúðir og ég borgaði doktor Kram undir borðið ekkert skriffinnsku kjaftæði

. Enn í þessum bæ Osterholz-Scharmbeck duttu kvensurnar inn í búð með gæða prís og frúin mín komst í gírinn verslaði sér nokkrar flíkur fyrir sinn eigin pening svo ég slapp létt hjúkket

. Síðan fórum við og fengum okkur bakkelsi og með því og höfðum það notalegt núna erum við kallarnir að fá okkur nokkra öllara og spjalla saman
»
28.06.2011 21:46:11 / boggih
Skruppum til Cuxhaven í dag gaman að keyra um sveitirnar í sólskyni og blíðu hitinn fór í 33 stig mest. Fórum á sandströndina pabbi fussaði yfir þessum hita hann fór bara á barinn á meðan við hin nutum þess að vera á ströndinni. Ég labbaði með mömmu lengst út á ströndina var sko fjara. Höllu fannst þetta voða sætt ég að leiða og labba með mömmu

skoðuðum okkur aðeins um komumst ekki í hestaferðina út í eyjuna það þarf að panta það með fyrirvara svo vinsælt

Annars er GPS tækið mitt alveg að rúlla þessu upp turn left turn right

förum alltaf sveitavegina og skoðum litlu þorpin hér og þar . Já í Cuxhaven sá ég garðstyttu sem ég fílaði í tætlu álfur sko álfastelpa á túttunum hehehe....

enduðum svo í Bremen og borðuðum þar á Ítölskum veitingastað klassa matur sem við fengum þar og góð þjónusta.
»
27.06.2011 21:04:34 / boggih
Skruppum til Bremen í dag til að versla smá og skoða okkur um. Loftkælingin í bílnum notuð óspart enda var hitinn 32 stig

Gerðum heiðarlega tilraun til að finna Beck's verksmiðjuna en enduðum á Beck´s bar í staðinn

. Þurfti að kaupa mér ipod snúru uss gleymdi minni heima á klakanum glæpaverð á þessu dóti

. Enn kvenkosturinn í Bremen er æðislegur brjóstabínur út um allt

Hjörvar verslaði sér æðislegar mini short nærbuxur hahaha....



það gerist ekki flottara

hann er kvennagull hann pabbi

ég á ekki langt að sækja þetta hehehe......

. Hjörvar grillaði og þvílíkt bál hann er ekki sparsamur á grillvökann ég beið bara eftir að slökkviliðið mætti á staðinn. Hann pabbi er æði og honum tókst að grilla án þess að bjóða upp á brunna skósóla hehehe....... og mamma slappar bara af og hefur það notalegt og hún stjórnar Hjörvari úr fjarlægð Hjörvar hvað ertu að gera Hjörvar Garðarsson viltu gjöra svo vel.... o.s.f.r.v hehehe allt undir control á þessum stað
»
26.06.2011 19:48:36 / boggih
Skruppum til Bremen í dag fórum í mollið þeirra en allar búðir voru lokaðar svo við fengum okkur bara eitthvað að borða í staðinn. Eftir máltíðina löbbuðum við að útganginum þá mundi ég allt í einu eftir því að ég hafði gleymt myndavélinni minni á borðinu. Halla ætlaði bara að fara út í bíl og bíða en ég þaut af stað að leita að myndavélinni rétt á eftir þaut mamma í allt aðra átt og ætlaði að elta mig og Hjörvar rölti svo seinna af stað. Þetta var nú meira ævintýrið ég fann myndavélina en mamma týndist og ég hljóp 3 hringi til að finna hana alveg kófsveittur en loksins fann ég hana á endanum sem betur fer

Svo á heimleiðinni fórum við á flóamarkað þar voru lúðrasveitir að spila allir að drekka öl og hafa það huggulegt gerist ekki betra ég fékk mér nokkra svo keypti Halla eitthvað skraut fyrir klink alveg himinlifandi með það

og hún keyrði heim. Já í gærkvöldi fór ég í rosa göngutúr með pabba var næstum því búinn að ganga frá gamla manninum þetta var spúkí á miðnætti slökknuðu öll ljós svo að við löbbuðum í niðamyrkri heim á leið. Pabbi fann fyrir einhverjum óþægindum en jafnaði sig hægt og rólega þegar við komum í húsið hann pabbi er eitthvað viðkvæmur fyrir hitanum hér en það var 24 stiga hiti í dag og sólin skein við og við hjá okkur
»
25.06.2011 21:10:51 / boggih
Það var sofið út í morgun alltaf gott að kúra aðeins

Síðan skruppum við til Bremerhaven og fórum að skoða Loftslagshúsið. Það var mjög gaman já maður borgar fyrir að svitna hahaha....alveg geðveikur hiti í Afríku loftslaginu og regnskógurinn sló í gegn hjá Höllu það var myrkur þar og svo fékk maður dropa á sig að vísu fussaði pabbi yfir þessu hita átti ekki alveg við hann.Síðan fórum við á svæði þar sem hitastigið var -5 gráður það var eins og við værum komin heim á klakann hehehe

Já svo fórum við yfir svona brú sem var mjó spýta og reipi við fórum öll nema mamma yfir þessa brú svo hristi ég hana aðeins þegar Halla var að komast á enda hún alveg tjúll hahaha

en það var vatn undir henni svo á bakaleiðinni þurfti maður að stikla á grjóti yfir vatnið en auðvitað tók ég ekkert eftir því í byrjun og blammaði í vatnið og Halla skellihló svo gerði pabbi það nákvæmlega sama father like son

núna er ég að drekka eðal bjór Maternus frábær bjór 45 krónur stykkið og Tuborg er á sama verði þetta er bjór himnaríki



skál allir saman á klakanum.
»
24.06.2011 20:15:50 / boggih
Dagur 1
Það pípti á mömmu þegar hún fór í gegnum hliðið á keflavíkurflugvelli já hún mamma er sko enginn smá krimmi hehehe... svo fór hún í panik hvar er síminn minn auðvitað var hann á góðum stað í töskunni hennar

Jæja tók okkur 3 tíma að komast í húsið en það er voða kósý nóg pláss fyrir okkur og æðislegur garður. Fórum og versluðum nauðsynjar semsagt öllara og fleirra

Svo tókst pabba að læsa sig inni á klósetti og svo lokaðist mamma inni á klósetti skömmu síðar Halla bjargaði henni og hún gat ekki annað en hlegið að þessu

En barirnir sem eru 2 voru lokaðir í kvöld fór og tékkaði á þeim með pabba gamla sáum svolítið af unglingum að drekka hér og þar í göngutúrnum okkar. Auðvitað þurftum við að leggja okkur um miðjan daginn ekkert hægt að sofa í flugvélinni en við erum öll hress og kát
»
08.07.2010 18:41:31 / boggih
Maður á fertugsaldri í Reykjavík ákvað að stofna fyrirtæki árið 2006, með jarðvinnu og lóðafrágang að aðalstarfi. Hann kaupir sér vörubíl og traktorsgröfu á um það bil 13 milljónir samtals. Það var fjármagnað með myntkörfuláni í japönskum Yenum og svissneskum frönkum. En hann gerir röð af mistökum sem urðu afdrifarík.
Fyrir það fyrsta þá byrjar hann sem einyrki og rekur fyrirtækið á eigin kennitölu.
Það annað sem hann gerir er að samþykkja að faðir hans gangi í ábyrgð með honum,
Hann átti hús, en ekki leist þeim á veðhæfi þeirrar eignar, en á henni hvíldi um 70% lán frá sama fjármögnunarfyrirtæki. Skuldlaust hús föður hans var miklu betri kostur.
Og ekki virtust tækin standa undir veðinu sem á þeim hvíldi, svo að mig rennir í grun um að stefna fjármögnunarfyritækjanna um að lána sem mest í gjaldeyristryggðum lánum hafi verið langtímaplott, því eins og flestum er kunnugt þá tóku bankarnir stöðu gegn krónunni gagngert til að hagnast á gengismuni, þegar þeir sáu að allt var á leið í hundana.
Reksturinn gekk bærilega, og hann var með skólakrakka í sumarvinnu, og á veturnar mokaði hann snjó, því hann var laginn að verða sér út um verkefni.
Hann kláraði að byggja húsið sitt og gerði lóðina snilldarlega fallega, svo að verðmæti eignarinnar jókst umtalsvert, án þess að frekari lán væru tekin.
Svo kemur að því að Geir Haarde telur það tímabært að biðja Guð að hjálpa sér og Íslandi. Við vitum hvernig það gekk, allar framkvæmdir stöðvuðust, og lánin hækkuðu og hækkuðu, með aðstoð fallandi gengis íslensku krónunnar, sem eins og áður er sagt var plott lánastofnana.
Vinur okkar er atvinnulaus, og með tæki sem þarf að greiða af, en standa bara verkefnalaus. Fjármögnunarfyrirtækið var ekki lengi að sækja tækin. Það gerðist 12 dögum eftir að þriðja afborgun fór í vanskil. Uppgjörið var heldur ekki lengi að láta sjá sig.
Samkvæmt því skuldaði drengurinn 14,2 milljónir í það heila, Tækin voru metin á 4,8 milljónir, en samkvæmt óháðu sölumati, þá var gangverð þeirra rúmar 9 milljónir, og sennilega meira, því þeim hafði verið vel við haldið. Samt kom þessi venjulegi reikningur fyrir þrif og viðgerðir upp á 1,1 milljón, og lækkaði matsverðið í 3,7 milljónir. Eftirstöðvarnar stóðu í cirka 10,5 milljónum.
Á þessum tímapunkti var ekki búið að frysta nauðungaruppboð, og fjármögnunarfyrirtækið var ekki lengi að bjóða húsið upp, og keypti það á sínum fyrsta veðrétti, og þar af leiðandi fékkst ekkert upp í tækjakröfurnar.
Hjónin áttu húsið saman og voru gift, og þar af leiðandi bæði komin á svartann lista. Þau fengu þrjá mánuði til að rýma húsið, og það stóð ekki á fjármögnunarfyrirtækinu að rukka leigu, og hana ekkert í lægri kantinum, því að auðvitað vissu þeir að þau þyrftu tíma til að pakka niður og tæma húsið, og að sjálfsögðu vildu þeir fá leigu á meðan.
Fólk á svörtum lista á erfitt með að fá húsnæði leigt í Reykjavík, og ekki voru til miklir peningar á heimilinu.
Maðurinn varð þunglyndari og þunglyndari dag frá degi, því hann gerði sér fullvel grein fyrir hvert málin stefndu. Og eina nóttina skömmu áður en þau áttu að flytja, þá skrifar hann kveðjubréf til fjölskyldunnar og einnig kurteislegt bréf til fjármögnunarfyritækisins þar sem hann sagðist ekki sjá að hann ætti neina framtíð fyrir sér, og yrði bráðlega útskúfaður af fjölskyldu sinni.
Þessa nótt svipti maðurinn sig lífi í bílskúrnum á húsinu sem hann byggði. Hann varð 37 ára.
Það voru ekki margir dagar liðnir frá jarðarförinni, þegar kröfubréf og hótanir um nauðungarsölu fóru að berast foreldrum hans. og þá voru eftirstöðvarnar komnar vel á fjórtándu milljón.
Gamli maðurinn fer til fjármögnunarfyrirtækisins og greiðir upp kröfuna með sparifé, og lífeyrissjóðsláni, og hann fer fram á að fá að greiða alla upphæðina og fá tækin afhent aftur, í von um að geta gert sér eitthvað meiri pening úr þeim en fjármögnunarfyrirtækið hafði metið þau á, og jafnvel minnkað tjón sitt eitthvað.
Nei það var ekki hægt, því þeir vildu ekki selja tækin svona ódýrt, en hann fékk tilboð um að fá þau keypt á 10,5 milljónir, því þau voru svo vel með farin, og í svo fínu standi. ( Er ekki smá rökvilla þarna? )
Ég heimsótti foreldrana, og fékk að skoða pappírana sem gamli maðurinn hafði undir höndum, og fékk leyfi til að segja ykkur söguna, ef nafnleyndar yrði gætt, og allir sem segja mér sína sögu meiga treysta því að nafnleyndar verður gætt sé þess óskað.
Ég verð að segja að ég hef ekki séð ósvífnari og rætnari aðgerðir. Innheimtubréfin voru hrein og klár hótunarbréf.
Ég gleymdi að spyrja föðurinn hvort ég mætti nefna fjármögnunarfyrirtækið á nafn sem hagaði sér svona alúðlega. En ég fæ vonandi leyfi til að gera það, og þá kemur það á stundinni.
Ég bauð gamla manninum að fara í málið með honum og ræða við lögfræðinginn minn, sem er snillingur í svona málum, en svarið sem ég fékk var: Drengurinn minn lifnar ekki við þó að ég fái einhverjar krónur.
Þarna er búið að rústa lífi þriggja ættliða, því barnið er búið að fá finna fyrir þessu enda 11 ára þegar faðirinn dó.
............
»
04.04.2010 11:09:10 / boggih
Jæja þá erum við komin heim enn á ný

Þetta var ágætis ferðalag Varsjá er bara svona stór borg með búðum og stríðs minnismerkjum út um allt og svo kirkjurnar en maður þarf að passa sig á leigubílunum þeir reyna alltaf að pretta túristann city taxinn er ódýrastur . Fórum á risa útimarkað ekki smá mikið af dóti þar að vísu erum við Boggi svo blómleg að við pössum ekki í þessar míní stærðir híhí..... pólverjar eru svo fitt enda labba þeir geðveikt mikið á milli staða en ég keypti 1 eyrnalokka geðveikt flotta og svo smá meira ;o) Kraká er svona miklu meira túrista væn stórt torg og höll og margar kirkjur þeir eru svo trúaðir þarna allir kirkjugarðar með þvílíku blómahafi mest gult en líka aðrir litir flott að sjá þetta. Á leiðinni til kraká sá maður bæi og borgir sumt allt í lagi en líka mörg hús sem þyrftu smá upplyftingu en örugglega fallegt að keyra þarna á sumrin þegar trén eru í blóma. En við Boggi erum alveg hissa á því hvað margt fólk talar bara enga ensku þarna úti fengum einu sinni leiðbeiningar í Varsjá frá leigubílstjóra hvar veitingastaðurinn væri sem við vorum að leita að á pólsku en við römbuðum á hann ;o) bara lukka. Indverskur staður allgjört æði maturinn þar. Við skoðuðum saltnámurnar rétt hjá kraká mjög gaman að sjá þær geðveikar tröppur sem við löppuðum niður c.a 700 tröppur svo kíkti ég niður og sá ekki botninn og svimaði bara enda er ég lofthrædd ;o) en þarna niðri í námunum er svaka kapella útskorin í saltsteininn svaka flott og svo var okkur troðið í lyfturnar á leiðinni upp 15 manns í lyftu í einu það skipti ekki máli hvort að það voru stórir eða litlir við sögðum bara úff það var svo troðið það var ekki hægt að hreyfa sig en sem betur fer er lyftan fljót upp

Svo fórum við í Auswitch úff það var kaldasti dagurinn hjá okkur vindurinn blés svo mikið mjög sérstakt að sjá þetta svo fórum við hinar búðirnar Birkenau minnir mig að þær heiti úff svakalegt að sjá þær svo stórar og kojurnar sem 7 fangar sváfu í einni og klósetin í einum kofanum bar mörg göt og kannski 4 saman að nota eina litla holu þetta var svakalegt að sjá þetta svo sáum við rústirnar af gasklefanum þjóðverjarnir sprengdu þá upp í lokinn til að fela glæpi sína þetta var ótrúlegt að sjá þetta allt saman. Jæja þá aðeins á léttari nótum hittum eitt kvöldið í kraká tvo unga norðmenn þeir spurðu hvað eruð þið að gera hérna eruð þið ekki gjaldþrota og já svo eruð þið hrædd við gosið þess vegna flúðu þið til Póllands hahahaha.. við Boggi hlógum ekki smá mikið að þeim þeir voru búnir að fá sér nokkra öllara

það er frekar ódýrt að borða þarna úti og drekka en annars er verðlagið svipað á fötum og hérna heima. En þetta var ágætis ferðalag og það var labbað mikið og skoðað ýmislegt.
»
24.10.2009 19:55:00 / boggih
Þá er maður mættur á klakann aftur

Þetta var hin fínasta ferð hjá okkur hjónunum

Halla er alveg svakaleg það er eins og hún sé með innbygðan radar á öll mall hehehe... það fuku nokkrir þúsund kallar hingað og þangað svo nú verður ekkert bruðl á næstunni

Já við villtumst pínu þarna en redduðum okkur alltaf samt lentum alltaf á réttum stað

fórum aðeins upp í sveit sáum dádýr kindur hesta og beljur við vorum svaka heppin með veður. Svo voru fínir pöbbar nálægt hótelinu þar sem við borðuðum á kvöldin og eitt kvöldið fórum við á bar sem er með 60 tegundir af bjór á krana já sæll......

þar var hægt að kaupa svona dælu á borðið ferlega sniðugt það voru svona c.a 6 stórir bjórar í henni þeir virkuðu fínt

og svo fórum við líka í almenningsgarð í sól og hita allavega þegar lognið var þegar það blés þá var ískalt brrrrr...... þar var ung kona að spila á flautu ferlega næs að hlusta á hana og slappa bara af eftir allt búðarröltið.
»
19.10.2009 10:14:59 / boggih
Jæja
Þá er afmælið hennar Höllu búið og heppnaðist veislan bara vel og pinna maturinn æði allavega tortilla snitturnar ég var píndur til að aðstoða við gerð þeirra hehehe.....

já og bollan mín var bara saklaus þetta árið enda var frúin með annað augað á henni þegar ég var að blanda þið skiljið

á endanum vorum við bara 4 eftir í partýinu ég og frúin og Palli og Ragga það voru tekin nokkur skemmtileg dansspor

og takk elsku besta Ragga krútt þú ert æði og allgjört yndi

Já svo gleypti Kiddi flugu og hóstaði geðveikt og hann fékk bara á sig essasú hahahahaha......

verður að vera einn froskur í partýi

Takk öllsömul fyrir frábært kvöld. Nú er stefnan bara tekinn á Halifax heyrumst seinna
kæru vinir
»
16.10.2009 09:20:41 / boggih
Já Já
Þá er nú afmælisdagurinn minn liðin þvílíkur dagur

Boggi veikur og svo varð Stefán ennþá veikari. Það endaði með því að ég fór með hann á læknavaktina og þaðan vorum við send á bráðamóttöku spítalans á hringbraut. Þar var hann lagður inn litla gullið mitt kominn með sýkingu. Hann vildi ekkert láta mömmu sína hanga yfir sér á spítalanum svo að ég var send heim og ég var náttúrulega ómöguleg hérna heima

En það er líklegt að hann Stefán minn fái að koma heim í dag

þeir eru samt að rannsaka hann aðeins betur núna. Annars þakka ég bara fyrir góðar kveðjur á afmælisdeginum mínum hafiði það sem allra best.
kv Halla.
»
27.08.2009 10:51:37 / boggih
jæja nú er maður flottastur lít út eins og Björgvin Halldórsson á yngri árum brotnaði hjá mér framtönn

svo að núna eru bara heilu syrpurnar teknar með Bó þó líði ár og öld.......
»
06.08.2009 20:05:39 / boggih
Þá er maður mættur aftur í borgina

Þetta var alveg frábært ferðalag

að mestu þurrt pínulítil væta. Fórum norður og hittum Jóa og Svandísi og Palla og Guggu vorum með Svanhildi og Baldur með okkur líka vorum á hálfgerðu ættarmóti svo kom bara í ljós að ég er skyldur þessu fólki fjórmenningur, eftir það var ég bara kallaður frændi hehe

það var grillað og haft það næs svo var líka varðeldur eitt kvöldið svo var sungið í partý tjaldinu þangað til að röddin var næstum því farinn Maður skrapp í sund á Grenivík maður var bara með einkalaug

.Svanhildur og Halla fengu líka að fara á fjórhjól svaka fjör hjá þeim þau voru nokkur á svæðinu. Svo skruppum við líka í laugina á Akureyri og borðuðum á Greifanum

einn daginn. Svo fórum við líka í bíltúr inn Flateyjardalinn. Það var gaman með svo góðan leiðsögumann vissi hvað hver þúfa heitir fróðleiksmaður hann Sigurður. Á kvöldin þá spiluðum við saman í fellihýsinu þeirra Jóa og Svandísar komumst að því að við erum öll hálfgerðir nördar hahaha....

höfum gaman af Stargate Atlantis og svoleiðis og öðru spili

. Já svo dýrkaði Halla nýja hitablásarann sem ég keypti núna var hún ekki eins og eskimói þegar hún fór að sofa hehehe...

gistum eina nótt á Laugum var smá vindur um nóttina og smá skúrir en annars mjög fínt við tókum Palla að okkur í smá stund fórum með honum í sund og greyjið ældi sem betur fer ekki í laugina en því var bara reddað fórum í blak í lauginni strákar á móti stelpu Halla rústaði okkur 20 á móti 17 hún dansaði stríðdans í lauginni

en þetta var frábær ferð takk fyrir okkur kæru ferðafélagar
»
18.07.2009 20:42:15 / boggih
Skrapp í smá bíltúr í dag með konunni og yngstu systur hennar. Fórum að skoða rústirnar af Valhöll lentum í rigningu og þrumum þar rétt hjá .Skelltum okkur í sundlaugina sem er rétt hjá Aratungu ferlega næs ég fór nokkrar salíbunur í rennibrautinni og mér tókst að draga konuna eina ferð hún stoppaði í brautinni og hló bara síðan tókst okkur að fá systur hennar í eina salíbunu stórglæsilegt hjá henni skvetta og læti

vorum með nesti með okkur appelsín og dóna gerist ekki betra
»